|
|
20.08.2007 08:04:39 / ploli
Hæ, í dag er ég 19 ára.. Vúhú! 
»
18.04.2007 23:13:20 / ploli
svekk..
»
14.04.2007 23:18:24 / ploli
Mikið rosalega er söngkeppnin leiðinlegt sjónvarpsefni... úff..
»
02.04.2007 13:07:31 / ploli
Í ljósi þess frjálsræðis sem ríkir á því landi er kennt er við
ís og eld hef ég ákveðið að halda áfram að blogga í þeirri von um
að aðrir lesi.
Vil líka koma þeirri gremju og andúð minni á MR á framfæri,
aðallega vegna nýafstaðinna úrslita í Gettu Betur. Eitt stórt
"svekk" fyrir MK, hefðu átt að vinna þetta...
Kv. Plóli.
»
10.09.2006 14:39:19 / ploli
Jæja, þá er skólinn bara kominn á fullt
skrið ef svo má að orði komast, busunin búin og fyrsta ballið og
nemendur strax farnir að tala um hversu mikið sé að læra og hversu
leiðinlegt það allt er. Mér finnst nú ekkert eins leiðinlegt og að
læra en geri það samt til að komast klakklaust í gegnum hann.
Var samt að spá hvort margir hefðu
lesið lókal-blöðin hérna í sýslunni núna frá því á fimmtudaginn?
Þar er nefnilega talað um það að busavígslan hafi ekki verið falleg
og hafi bara verið vond og að níðst hafi verið á mannréttindum
busanna. Það er fullorða fólkið að tala um. Síðan eru það
unglingarnir, þar á meðal busarnir sem segja að busavígslan hafi
verið léleg og að ekki hafi verið nógu mikið gert svo að það eru
tvær ólíkar hliðar á málinu, annars vegar sú að það eigi jafnvel að
henda busavíglunni í ruslið og hins vegar að busavíglan eigi að
vera eins og hún var í "gamla daga" þegar busar voru boðnir upp og
allskonar þrautir voru settar fyrir busana. Ég er sjálfur eins
mikið á móti því að busavígslan hafi ráðist á mannorð busana og vil
að sjálfsögðu halda henni við til ókominna ára enda er hún
órjúfanlegur þáttur í lífi nýnema í framhaldsskóla. Gaman að sjá
hvað næsta nemendaráð gerir varðandi busunina og þá sést hvort að
hún verði góð eða bara bókstaflega ömurleg vegna þess að það má
varla neitt nú til dags.
Tilvitnun í Örlyg
Karlsson, skólameistara: "Þó verður að segjast að álitamál er
að halda í slíka siði sem eru fyrst og fremst niðurlægjandi fyrir
nýja nemendur skólans og gegn anda mannréttinda og virðingar fyrir
einstaklingnum. Það hlýtur að vera hægt að hafa þessar vígslur í
jákvæðum anda en að öðrum kosti er best að leggja þær
niður."
Busaballið var líka fínt.
En út í aðra sálma, rosaleg djammhelgi
framundan miðað við þessa "dauðu" helgi sem maður eyddi bara með
kærustunni , tvö böll og réttir og allt hvað eina... En ekki hjá
mér, ég er nefnilega að fara til Lundúna (London) að skoða hluti og
að kíkja á svo að segja eitt stykki tónleika með Robbie Williams og
Orson. Það verður sko gaman ;D.
en nóg um það, endilega svara könnuninni og kommenta varðandi
busunina.
»
20.08.2006 01:28:07 / ploli
Hæ, ég er 18 ára í dag.. það er fínt
»
16.07.2006 21:17:43 / ploli
Jaaaá, þarna er sólin... 
Veðurhorfur næsta sólarhringinn:
Hæg vestlæg átt eða hafgola. Bjart með köflum og hiti 10 til 18
stig að deginum, hlýjast í uppsveitum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag
og miðvikudag: Hæg austlæg átt og skýjað með köflum, en súld eða
dálítil rigning við suður- og austurströndina. Hiti víða 10 til 15
stig, en allt að 20 stigum í innsveitum norðan- og vestanlands. Á
fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag: Hægviðri og yfirleitt
bjart, en víða þokuloft eða súld úti við ströndina. Hiti víða 12
til 17 stig, en allt að 25 stigum inn til landsins. Spá gerð
16.07.2006 kl. 08:12
Þetterr fínt bara 
»
15.07.2006 16:27:57 / ploli
Veður á Íslandi er
ææææðislegt!

hvar er sólin?  
»
12.07.2006 01:02:57 / ploli
Jæja, hvernig fannst fólki á Írskum dögum? Kannski sumir sem sjá
verulega eftir þeim og aðrir sem fóru á þá og vöknuðu heima hjá
sér. Svo líka þeir sem skildu eeekkert hvers vegna það var svona
ógeðslega kalt þarna og pældu ekkert í því að Akranes er næstum
ofan í atlantshafinu... merkilegt. Ég leit nú þarna aðeins við og
hitti þá helstu og sá það helsta, ákvað líka að sleppa því að fara
sömu leið og Stebbi, sem einmitt keyri á Skagann, mætti þangað
manna síðastur og fór þaðan manna fyrstur ásamt fríðu föruneyti.
Fínt hjá þér, Stefán. Sé samt eftir því að hafa farið svona
"fljótt", hefði átt að rota Hedda láta bíllyklana hans í hendur
Eika. Heddi hefði þá að sjálfsögðu ekki þakkað mér fyrir..
En út í aðra sálma, sólin á Íslandi er betri en sólin á Spáni,
loforð stelpnanna í 3. flokki kvenna um að koma heeel tanaðar heim
féll um sjálft sig. Flott það.. Þeim gekk líka geeeðveikt vel
úti... eða ég held það..
Og landsmótið var þarna einhversstaðar á milli, ein besta helgi
ársins og systernið að standa sig, 8. sæti í A-úrslitum í
barnaflokki í sinni þriðju keppni. Frábært það.
Ég sakna samt derhúfunnar minnar :/
Svo voru úrslit HM, Ítalía - Frakkland og endaði það með sigri
Ítala (Sádi-Araba fyrir Ragga) en Zidane kvaddi með stæl, stangaði
"Snargeðveika Ítalann" Materazzi, hefði í raun mátt halda áfram
eftir stunguna  eeen ég vil meina að Ítalir hafi verið heppnir
vegna þess að þeir rétt svo slefuðu framhjá skemmtilegasta liði
keppninnar og því liði sem ég hélt í rauninni með, það eru Ástralir
Dömur mínar og herrar; Marco Materazzi -
http://www.dailymotion.com/antonio_montana_/video/38919
--- copy/paste --- jaja
Og svo eru bryggjudagar um næstu helgi á Stokkseyri og hvet ég alla
að kíkja allavega smá...
en komið fínt þetta, bleeee
ps. flottur auli heddi - metros.tk
»
19.06.2006 01:41:16 / ploli
sá sem verður nr. 17.000 fær Toblerone
»
14.06.2006 18:14:27 / ploli
Bleee.
-
tilraun 2.
-
langt síðan síðast
-
Skotland búið - aðeins
skemmtilegra..
-
mikill einkahúmor eftir
hana..
-
,,Af hverju er ekki búið að
opna fyrir okkur?" - ,,Af því að þú ert hálfviti.."
-
fór í þrjár ferjur.
-
kíkt til Hjaltlandseyja, Færeyja og
Orkneyja..
-
mikið drukkið og mikið
glens..
-
Dansaði skosku dansana - það er
skemmtilegast í heimi! 
-
sá Loch Ness.. vatnið
-
og Edinborgarkastala - stóri
gaur!
-
mögnuð ferð!
-
kom beint heim í sveitta útilegu -
ein sú sveittasta sem hefur verið haldin.
-
ógeðslegt að vakna daginn
eftir..
-
en er líka kominn með kæró - Ernu
:*
-
síðan er vinnan byrjuð á
fullu..
-
eini vélamaðurinn -
fráábært..
-
fór á vinnuvélanámskeið með Balla -
er staðinn...
-
ooog svo er HM byrjað - aðeins
beetra!
-
-
geggjað!
-
og svo bíladagar um helgina.. eða
ball.. hvort er málið?
Komið gott, ble!
»
23.05.2006 12:02:52 / ploli
»
19.05.2006 00:03:30 / ploli
Jæja, þá er þessi önn búin
og má segja að hún hafi verið eiginlega aaaalltof fljót að
líða. Maður náði aldrei að læra neitt og þessi tæplega 5
mánuðir voru búnir áður en þeir byrjuðu. Þó slapp maður nú
vel í gegnum hana, 23 einingar komnar í hús, þar af 4
eiginlega ókeypis, 2 fyrir kórinn og maður er nú einmitt að
fara til Skotlands með honum eftir helgina, farið með Norrænu
og svoleiðis, gerist ekki nettara... En yfir í allt annað. Ég
ákvað að líta yfir farinn veg hvað varðar önnina og þá komst
ég að því að það gerðist alveg hellingur á
henni:
Gettu Betur byrjaði í janúar og endaði í byrjun
mars. Við komust í sjónvarpið og náðum þar með takmarki okkar
Tryggvi komst í kassann.
Kátu dagar. Fótboltamótið á kátum dögum þar sem
liðið mitt komst í úrslit og sló meðal annars út hið háttskrifaða
Godfellas-lið. Gott það!
Flóafárið. Sigur í því, Sven Bomwollen (Svampur
Sveinsson) í fyrsta sæti! Hvílíkur unaður og lífsgleðin í
hámarki.
Let it be-Söngleikurinn, sem ég "lenti" einhvern
veginn inní og reddaði ásamt fríðu föruneyti því sem redda þurfti.
Glæsilegur söngleikur!
Söngkeppni framhaldsskólanna, þar sem Kalli í
Holti var netti gaurinn og komst í úrslit.
ooog 3 böll, janúar-, kátu daga- og lokaball.
Nett böll að hætti NFSu.
En yfir í annað, Silvía Nótt komst ekki áfram
fyrir þá sem ekki vita. Hvet samt alla til að kjósa frændur vori,
Finna, vill ekki sjá eitthvað dramarugl vinna þetta. Og ekki láta
úrslitin draga úr djamminu, gengur bara betur næææst.. eða eitthvað
svoleiðis.
En nenni ekki meir, bleee.
Og Barca vann meistaradeildina og Liverpool
F.A.-cup í vítaspyrnukeppni, þeir kunna sko að hafa alvöru
úrslitaleik!
»
03.05.2006 20:17:43 / ploli
Já, nú er skólinn eiginlega búinn og
prófin eru hafin. Maður er búinn að fara í þrjú próf af heilum
átta, íþróttafræðipróf, sem var auðvelt, munnlegt frönskupróf, þar
sem tunga vafðist um tönn, og að lokum eðlisfræðipróf, sem var ekki
besti vinur minn. Og svo er íslenskupróf á morgun og verður það
vonandi ekki eitt af þessum leiðinlegu prófum þar sem maður getur
ekki neitt og lokast. Þess má einnig get að núna eru einnig
grunnskólakrakkarnir að taka samræmduprófin og megi þeim ganga vel
í þeim.
En ég ætla að líta lengra áfram en prófin því að
sumarið er framundan og er mín spá að þetta stefni allt í hið besta
sumar. Byrjar á því að ég fer til Skotlands, ókeypis, með kórnum og
verður það einhver 13 daga ferð eða svo, jájá, það borgar sig að
vera í kór. Síðan fer maður bara að vinna í tjillvinnunni og kíkt á
lífið um helgar.
Ég giska á að toppar þessa sumars verði:
- Bíladagar á Akureyri.
- Írskir dagar á Akranesi.
- Landsmót Hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði
- og að sjálfsögðu Þjóðhátíð í Eyjum!
Og svo eru auðvitað miklu fleiri atburðir á
könnunni út um allt land, en ég man bara ekki hvar þeir eru... En
nóg um það, ætli þetta sé ekki bara komið gott, best að fara að
læra
Plóli!
ps. metros.tk
»
26.04.2006 13:40:43 / ploli
Jæja, hvernig er það svo, á að fara á ball á föstudaginn?
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|